Clinique hefur sent frá sér enn eina snilldina, nýjan farða sem kom bara í búðir í gær. Farðinn heitir PORE REFINING SOLUTIONS og megintilgangur hans er að slétta úr húðinni og draga úr sýnileika opinna svitahola.
Áferðin af farðanum er ótrúlega slétt, örlítið mött en á sama tíma kemur hið eftirsótta “glow” í gegn.
TÆKNIN
Tæknin á bak við þetta er sameining tveggja mikilvægra þátta Padina Pavonica Extract og Salvia Sclarea sem vinna meðal annars í því að hreinsa upp svitaholurnar og halda þeim áfram hreinum svo að þær halda ekki áfram að stækka. Á sama tíma minnkar framleiðsla húðfitunnar sem kallar á stærri svitaholur.
Farðinn sléttir það vel úr húðinni að um leið og svitaholurnar verða umtalsvert minna áberandi sjást fínar línur einnig minna. Farðinn hefur slegið rækilega í gegn hjá snyrtivörubloggurum á netinu og er eflaust kærkomin þeim sem pirra sig opnum húðholum í andliti.
Þessi farði er einstaklega hentugur fyrir allar konur sem vilja minnka ásýnd svitahola í andliti og sérstaklega þeirra sem eru með húð af feitari gerðinni en farðinn gerir krafaverk fyrir þær konur.
Til að fullkomna árangurinn gæti verið sniðugt að Pore Refining Solutions Correcting Serum bæði kvölds og morgna og Pore Refining Solutions Instant Perfector Primer sem hentar vel undir alla farða en gerir húðina alveg exta slétta og góða ef þú notar með þessum nýja farða frá Clinique.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.