Er algjörlega “in heaven” með nýja naglalakkið mitt!
Það er frá Bobbi Brown og heitir Twilight. Liturinn er dökk brúnn/fjólublár með dass af grænbláum og bleikum flögum. Algjörlega fabjúlöss…grínlaust!
Liturinn er tilvalinn fyrir haustið. Svo ótrúlega fallegt og það er mjög gott að bera það á neglurnar. Burstinn er þægilegur og í raun er nóg að setja eina umferð þó ég hafi sett tvær.
Þetta er fyrsta naglalakkið sem ég prófa frá Bobbi Brown og ég er í skýjunum með það. Áferðin er svo skemmtilega flott, það glitrar létt á það og það skiptir pínulítið um lit eftir því hvernig birtan fellur á það. Það er dökkt og fer vel við hvaða “outfit” sem er. Hvort sem maður er í hvítu eða svörtu…litum eða ekki þá er þetta naglalakk málið.
Endingin er mjög góð, ég er búin að vera með það í þrjá daga núna og það sér ekki á nöglunum á mér. Samt er ég tveggja barna móðir, sífellt pikkandi á tölvuborðið, þrífandi þvott og allt sem því fylgir.
Sem sagt…Mjög góð ending!
Drífið ykkur út í búð ef þið viljið ná eintaki af þessu flotta lakki, því ég veit að það hreinlega hleypur út úr búðunum þessa dagana!
____________________________________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.