Nivea vörurnar eru í miklu uppáhaldi hjá mér þrátt fyrir að ég sé örlítill merkjasnobbari þegar kemur að vörum fyrir húðina.
Nivea hefur nefninlega komið með hverja snilldina á fætur annari ár eftir ár og nú er það Body lotion sem þú berð á þig í sturtu! Hversu frábært er það?
Kremið heitir In-shower Body lotion, Skin conditioner.
Ég er móðir tveggja stráka og tveggja hunda, í fullu starfi og alltaf á síðasta snúningi. Oft á tíðum vantar mig nokkra tíma í sólahringinn svo allt gangi upp þannig að þegar ég sé eitthvað sem er auðvelt og fljótlegt þá á ég það til að stökkva á viðkomandi vöru til að athuga hana.
Til mikillra lukku ákvað ég að prófa nýja body lotion-ið frá Nivea og það er æðislegt!
Mikill tímasparnaður felst í því að geta notað kremið í sturtunni en ég á það til að vera alltof löt við að bera á mig venjulega húðnæringu.
Maður einfaldlega þvær sér eins og venjulega í sturtu með sinni sturtusápu og á meðan hárnæringin er í hárinu þá ber maður Nivea kremið á sig en ég leyfði því að virka í smá stund eins og hárnæringunni fyrir hárið.
Þegar ég skolaði svo kremið af var húðin silkimjúk og ilmandi hrein. Í raun mýkri en eftir mörg venjuleg body-lotion.
Tvímælalaust vara sem ég mæli með! Frábær nýjung frá Nivea, því gamalgróna þýska gæðamerki.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.