Nú er komið nýtt BB krem frá Nivea á markaðinn en þýsku snillingarnir láta auðvitað ekki sitt eftir liggja með BB krem frekar en aðrir snyrtivöruframleiðendur.
BB kremið frá Nivea eru fimm vörur í einni sem hjálpast að við að halda húðinni ferskri og fallegri.
Nivea Daily Essentials BB kremið hjálpar við að jafna húðina, sléttir úr fínum hrukkum, jafnar húðlit þinn og ver húðina fyrir sólinni í leiðinni sem er frábært í sumar.
Kremið dregur fram þinn náttúrulega húðlit, mýkir hana og nærir með vítamínum á borð við B5 og Hydra IQ.
Nivea BB kremið fæst í tveimur litatónum, light og medium to dark.
Ég prófaði ljósara kremið og það hentar alveg fullkomlega sem hversdags farði. Fljótlegt eftir ræktina, sundið og bara ef manni langar að fá frísklegra útlit á augabragði en ekki vera “of mikið” máluð.
Mæli með þessu góða kremi fyrir allar húðtegundir, létt, þægilegt og falleg áferð og auðvitað er verðið snilld eins og alltaf með Nivea.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.