Hver elskar ekki góðan ferskan ilm? Vakna fersk, fara í sturtu, fara í fallegu fötin sín og setja svo punktinn yfir i-ið. Góðan ilm fyrir dagin!
Það einhvernveginn setur algjörlega daginn. Kemur manni í gott skap og gefur sjálfsálitinu boost.
Cacharel kom með dásemdar ilm í september í fyrra en hann er algjör klassík – ilmurinn Catch… me.
Ilmurinn er blanda af sítrus og ljúfum blómailmi, ásamt smá kryddkeimi, fullur af kjarki og fjöri.
Frekar léttur en samt með þessum kryddlegna tóni. Samblanda af sítrus, mandarínum, jasmine og smá viðartónum til að koma með þetta sem við viljum allar úða á okkur… kynþokka.
Ilmurinn er einstaklega kvenlegur, léttur og þægilegur hversdags sem og kvöldilmur án þess að vera þungur. Klárlega ilmur sem á eftir að vera vinsæll ár eftir ár, ljúfur og kynþokkafullur!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.