Eins og svo margir aðrir frægir einstaklingar hefur söngdívan Beyoncé hannað og gefið út sína eigin ilmi. Ég komst í kynni við nýjasta ilminn frá henni um daginn…
… Sá heitir Midnight Heat og kemur í fjólublárri flösku. Flaskan er ekkert spes í útliti en ilmurinn er góður að mínu mati.
Hugmyndin á bakvið þennan nýja ilm var að hafa hann meira ‘munúðarfullan’ en fyrri ilmi sem hún hefur gefið út. Þennan ilm hannaði Beyoncé með ástríðufullt kvöld í huga (það er aldeilis!).
Dívan vill meina að gott ilmvatn sé nauðsynlegur fylgihlutur og ég er sammála henni.
Midnight Heat ilmvatnið lyktar líkt og kryddað ávaxtatré. Ilmur af plómu og stjörnuávexti eru meðal þess sem finna má en orkedía og fjólublá bóndarós er einnig til staðar.
Mjög góð og girnileg samsetning!
Ilmurinn er á góðu verði og því tilvalin vinkonu jólagjöf !
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.