Ég hef alltaf verið smá skotin í vörunum frá Bobbi Brown enda eru þetta vandaðar og spennandi vörur sem koma í flottum umbúðum…
…Því var ég mjög spennt þegar ég las um nýju Desert Twiglight línuna sem er einmitt innblásin af eyðimörkinni, sólsetrinu og túrkís bláa litnum. Og nú hef ég eignast tvo hluti úr þessari flottu línu sem koma báðir í takmörkuðu upplagi.
Önnur varan er naglakk í túrkís lit sem heitir einfaldlega Turquoise. Þetta töffaralega lakk er skvísan einmitt með á myndinni fyrir ofan. Æðislega flottur litur og formúlan sjálf er mjög góð…þetta lakk er svo einnig til í lit sem ber nafnið Twighlight Night og er dökkur súkkulaði/plómulitur með sanseringu.
Svo er það uppáhaldið!
Sólarpúður og kinnalitur í einum pakka. Þetta dúó er snilld og sparar mikið pláss í snyrtibuddunni. Fallegar umbúðirnar hýsa bæði Bahama Brown bronser og Pink Peony krúttlegan kinnalit…og auðvitað stóran spegil. Þessa liti er að sjálfsögðu hægt að nota í sitthvoru lagi en ég nota þá báða saman fyrir þetta ‘sun-kissed look’.
Mæli með að kíkja á þessa vinsælu línu sem rýkur víst frá þeim í Bobbi Brown eins og heitar lummur…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ah0JhBxDybc[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.