Eucerin vörurnar njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi og það er hægt að lofa því að fæstar verða fyrir vonbrigðum sem byrja að nota þessar vörur sem húðlæknar mæla með.
Nýlega kom á markaðinn krem frá Eucerin sem heitir VOLUME FILLER. Kremið gefur húðinni í andlitinu góða og nærandi fyllingu og hjálpar verulega til þar sem húðin er farin að síga.
Þetta krem hentar konum sem eru farnar að sjá breytingu á andlitinu sínu og vilja fá smá lyftingu og stinningu í húðina.
Það hjálpar til við að styrkja varnir húðarinnar og verndar hana einnig frá utanaðkomandi áhrifum, mengun, öskuryki og hita og kuldasveiflum.
Þú berð kremið á andlit, bringu og háls en í þessari línu eru einnig augnkrem og næturkrem.
Augnkremið er gott að nota bæði kvölds og morgna en næturkremið, sem er virkara og inniheldur enga sólarvörn, er notað á kvöldin.
Þessar vörur sem eru ofnæmisprófaðar og innihalda mjög virk efni eru mjög hentugar fyrir þær sem kjósa einfaldar, ilmefnalausar en mjög áhrifarík krem.
Volume Filler línan er ætluð 35 ára og eldri og þeim sem vilja fá meiri fyllingu í húðina.
Til dæmis eftir mikið þyngdartap eða annað sem veldur því að dregur úr teygjanleika húðar.
Þú færð Eucerin vörurnar í næsta apóteki og þær eru á góðu verði.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig