Ég hef nú oft lofsungið snyrtivörurnar frá YSL enda eru þetta gæðavörur sem klikka seint…
…Varalitirnir og glossin hafa verið í uppáhaldi hjá mér undanfarið enda eru þessar vörur svo mjúkar og vel ilmandi að maður fær varla nóg. Svo er litaúrvalið líka endalust!
Núna fyrir sumarið gaf YSL út nýja liti í einni vinsælustu vörunni þeirra: Golden gloss- Shimmering Lip gloss.
Ég hef elskað Golden glossð frá YSL síðan ég prófaði það fyrst og hef eignast nokkra liti síðan. Og aaauðvitað prófaði ég einn af þessum nýju sumarlegu litum, sá litur er númer 51 og heitir Golden Shelle, þessum myndi ég lýsa sem nokkurskonar ‘nude’ lit.. Glossinn glansar endalaust enda inniheldur hann litlar gull-glimmeragnir. Og eins og alltaf þá ilmar hann dásamlega og minnir ilmurinn á mangó ávöxtinn.
Mæli eindregið með þessu rakagefandi glamúrglossi í snyrtibudduna!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.