Clinique voru að setja á markaðinn nýja vöru sem hefur slegið all rækilega í gegn.
Um er að ræða krem sem hylur húðholurnar og gefur húðinni slétt og jafnt yfirborð svo hún verður alveg fullkominn fyrir farðann. Slétt og fín. Kremið heitir því grand nafni Pore Refining Solutins Instant Perfector og er nýlega komið í sölu á Íslandi.
Margar konur pirra sig á stórum og opnum húðholum en með tímanum, og aldrinum, á sér stað niðurbrot kollagens í húðinni. Það er efnið sem heldur henni stinnri og þéttri og þá geta húðholurnar farið að virðast stærri. Jafnvel húðholur sem alla jafna eru í besta lagi geta einnig þarfnast hjálpar ef þær stíflast eða stækka vegna of mikillar húðfitu.
Kannaðu þessa flottu vöru þegar þú á næst leið um snyrtivöruverslun og sjáðu hvort hún gerir ekki eitthvað frábært fyrir þína húð -alltaf gaman að prófa!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.