Sá fyrsti var Reb’l Fleur, svo kom Rebelle en þriðji ilmurinn sem villingastelpan Rihanna sendir frá sér heitir NUDE.
NUDE er fyrst og fremst blanda af musk og vanillu, ilmir sem margar eru gersamlega háðar, mjög sætur, mildur, ljúfur og aðlaðandi.
Hér erum við jafnframt með ríka ávaxta og blómatóna, örlítinn við, mandarínur og perur, í hjartanu eða miðju ilmsins finnurðu hvít blóm; gardeníur, flauelsmjúka sambac jasmínu og rjómakennt appelsínublóm. Undirtónarnir eru svo sandalviður, vanillu orkídeur og “second skin” musk.
Ilmurinn höfðar sérstaklega til yngri kvenna þar sem hann er í eðli sínu ungur og ferskur. Flaskan er skemmtilega hönnuð í nokkuð einföldum og módern stíl og markaðssetningin er öll á mjúku nótunum. Æðisleg litapallettan með mjúku beige og hvítu litina. Rihanna alltaf flott.
Þetta er ilmur sem mun slá í gegn hjá aðdáendum söngkonunnar sem og öllum þeim sem elska létta blóma og vanilluilmi.
__________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=suuCisjwUlk[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.