Með 2012 hátíðarlínunni frá Bobbi Brown kom þessi snilldar palletta sem hefur að geyma þrjá augnskugga, tvo varaliti og einn gloss…
…Sem sagt sex vörur í einum pakka! Pallettan inniheldur svo stóran spegil til að fullkomna þetta. Umbúðirnar eru hrikalega fallegar…og nettar og ættu því að smellpassa í hvaða veski sem er.
Palletta þessi heitir Uber Nude Lip and Eye pallette og inniheldur tímalausa brúntóna liti fyrir augu og varir, flott samsetning! Augnskuggarnir eru mattir og þá er jafnvel líka hægt að nota á augabrúnir.
Ótrúlega finnst mér þessi palletta vel heppnuð og ég hef fundið nýja uppáhalds varalitinn minn, þennan sem er ofar í pallettunni. Hann er án glimmers og er í hinum fullkomna ‘nude’ lit að mínu mat. Og svo mjúkur!!
Þessi fágaða palletta væri til dæmis fullkomin gjöf fyrir þá sem á allt eða konuna sem vill ferðast létt en samt líta vel út.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.