Ég hef áður fjallað um Anti-blemish solutions línuna frá Clinique hið frábæra 3 þrepa ferli í átt að hreinni og fallegri húð (sjá hér).
Og nú var ég að bæta maska úr línunni við safnið mitt en ég hef fundið út að ég á ekki eftir að geta lifað án þess að nota þessar vörur daglega. Svo mikið hafa þær gert fyrir húðina mína.
Þetta er æðislegur leirmaski sem kælir og róar húðina en eins og með aðrar vörur í línunni þá er tilgangurinn að koma í veg fyrir myndun fílapensla, að andlitið glansi og hjálpa til við að losna við hvimleiðar bólur.
Þetta tekur 5 mínútur
- Ég hreinsa húðina með hreinsifroðunni úr Anti-blemish línunni.
- Síðan ber ég leirinn jafnt og þétt yfir andlitið. Ég passa að setja ekki of mikið en samt ekki of lítið. Bara þannig að hann þekji allt andlitið, þorni hratt og verði vel stífur.
- Bíð í 5 mínútur (það er aldrei gott að hafa maska á of lengi, farið alltaf eftir fyrirmælum um lengd).
- …og hreinsa af með volgu vatni.
Leirinn smýgur djúpt inn í húðina, hreinsar svitaholur og eyðir óþarfa fitu/olíu. Húðin verður hreinni, mýkri og roðinn sem fylgir bólum minnkar. Maskinn er olíulaus en á sama tíma gerir hann húðina ekki þurra.
Um leið og ég hef þrifið maskann af finn ég alveg hversu miiiikið hreinni og frísklegri húðin verður, tala nú ekki um hversu frábært það er að geta þurrkað upp t-svæðið líka (Enni, nef og haka).
Mér finnst mjög gott að nota maskann áður en ég set á mig farða, eins og þegar ég fer út á lífið. Farði er nefninlega alltaf mikið fallegri á hreinum “striga”. Eins finnst mér æðislegt að nota hann daginn eftir djamm og þá sérstaklega þegar ég hef ekki tekið farðann nógu vel af fyrir svefninn vegna þess að hann djúphreinsar svo vel og skilur húðina eftir með þessa frísklegu tilfinningu. Frábær vara!
Vandlátir notendur Sephora.com gefa maskanum 4.5.
Ég gef fullt hús [usr 5.5]
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.