Naomi Campbell imvötnin hafa alltaf verið í mjög miklu uppáhaldi hjá mér og hef ég fílað nánast alla ilmina fá henni.
Það telst nokkuð gott þar sem ég er mjög pikkí þegar kemur að ilmvötnum.
Nýjasti ilmur hennar At Night er svo sjúklega góður að ég á eftir að klára flöskuna á viku! Get ekki hætt að sprauta úr flöskunni!
Kynþokkafullur, pínu væminn, með dass af vanillu, jasmín, sedrusvið, grænum laufum og plómu.
Ávextir og vanilla er uppáhalds samblandan mín. Ég kann nefninlega ekki að meta of sæta ilmi og ekki of væmna á sama tíma. Þetta er fullkomin millivegur!
Ilmurinn er sá þrettándi frá Naomi og hafa þeir allir verið mjög vinsælir.
Flaskan er innblásin af fyrstu flöskunni sem kom út árið 1999. Ég hef átt ófáar flöskur af þeim ilmi! Einn af uppáhalds.
Ilmvötnin frá Naomi eru alltaf í ódýrari kantinum og er því fullkomin jólagjöf fyrir vinkonu eða mömmu!
Munið svo að það er rosa sniðugt að fá prufu með þegar maður gefur ilm í gjöf. Oft tekur nokkur skipti til að átta sig á hvort maður fílar ilminn eða ekki.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.