Chanel er alltaf fyrst með litatrendin fyrir árið.Ná algjörlega að fullkomna hvert árstíðartímabil með litunum sínum.
Nú eru komin 3 ný naglalökk frá Chanel og heita þau eftir mánuðunum, apríl, maí og júní. Allir litirnir eru æðislegir og er ég að vísu bara búin að prófa maí mánuð, þennan bleika en get ekki beðið eftir að prófa hina litina.
Litirnir eru sumarlegir, léttir og passa vel við sumartískuna. Bleikt og appelsínugult verður mjög heitt í sumar og þá er ekki slæmt að geta skellt fallegum lit á neglurnar í stíl.
Mæli algjörlega með því að skella sér á eitt (eða tvö) naglalakk frá CHANEL fyrir sumarið. Rosalega flottir litir!
Þessir litir eru algjörlega málið fyrir sumarið!
<
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.