Ég fékk í hendurnar um daginn nýja snilldar límmiða frá L’Oréal sem ætlaðir eru nöglum…
…Til eru margar týpur af þessum naglalímmiðum frá L’Oréal en ég fékk týpu númer 012 (Diamant Eternel). Hún er gegnsæ með ótal litlum silfur-doppum.
Í pakkanum eru 18 stykki af límmiðum í mismunandi stærðum þannig að auðvelt er að finna rétta stærð fyrir hvern og einn fingur.
Þar sem límmiðarnir eru glærir ákvað ég að byrja á að setja grunnlit á neglurnar. Ég valdi mér rauðan lit frá L’Oréal.
Þegar naglalakkið var orðið þurrt þá byrjaði ég að líma hvern og einn límmiða á og þjalaði svo límmiðann niður með nöglinni. Þetta tók allt saman svona 10 mínútur og útkoman var nokkuð flott að mínu mati.
Svo verður gaman að sjá hvað þetta endist lengi en á pakkanum stendur að límmiðarnir geti enst í allt að tíu daga.
Hrikalega sniðugt! Næst ætla ég að næla mér í gylltu límmiðana frá þeim!
_________________________________________________________________________________
[vimeo]http://vimeo.com/44676107[/vimeo]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.