Nú í vor kynnti L’OCCITANE nýja vöru – ALMOND SHAPING DELIGHT en markmið hennar er hámarks árangur í að skerpa og móta útlínur líkamans.
Þetta gel er unaðslegt og ferskt og maður hreinlega finnur hvernig það hjálpar til við að móta útlínur líkamans og styrkja. Það er einnig ríkt af öflugum náttúrulegum virkum efnum sem virka á margvíslega vegu:
ENDURMÓTAR
Blanda af seyði möndlubrumsins (ríkt af flavonvíðum sem losa út umframvökva) og plöntusamsetningu sem brýtur niður fitubirgðir og örvar þar af leiðandi fitulosun.
STINNIR
Möndluseyði og kísill hafa strekkjandi áhrif á húðina og auka því stinnleika hennar.
STYRKIR
Möndluprótein á yfirborði húðarinnar gera hana þrýstnari og hafa strekkjandi áhrif á hana.
Með þessu geli mæli ég með því að þú notir sturtuskrúbbinn úr sömu línu en hann heitir AMANDE SHOWER SCRUB. Í honum eru agnir af möndluskelinni sem hjálpa til við að hreinsa húðina. Þegar þú skrúbbar þig með honum (ég mæli með því að nota hanska við það) þá breytist hann í froðu og hjálpar það til við að koma gelinu inn í húðina því að þá er verið að hreinsa húðina í leiðinni.
Handáburðurinn úr línunni heitir AMANDE SMOOTH HANDS og fyrir ofurpjattaða strákamömmu sem er með handþvott á heilanum þá er þessi dásamlegi handáburður nauðsynlegur í veskið, hann kemur í 30 ml umbúðum og ætti því að passa vel í veskið eða snyrtibudduna.
Þess má geta að línan kemur í takmörkuðu magni og því myndi ég tryggja mér þessar vörur sem fyrst ef þú elskar möndluilm og jákvæð áhrif möndlunnar á hörundið.
Heimasíða L´OCCITANE er: www.loccitane.com
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig