Ultra Rich Face Cream frá L´Occitane er sérlega rakagefandi andlitskrem fyrir þurra húð.
Kremið er með 25% Shea butter sem smýgur vel inn í húðina og gefur henni djúpan raka. Þetta andlitskrem er sérstaklega hentugt fyrir mikinn kulda og hita og viðkvæma og þurra húð.
Ég er með þurra húð og ber þetta krem á mig 3-4 sinnum í viku eftir þörfum en daglega þegar mjög kalt er úti. Húðin verður endurnærð og laus við alla þurrkubletti um leið og kremið verndar fyrir veðri og vindum.
Mér finnst einnig gott að nota það sem maska, hafa þykkt lag af því yfir nótt og vakna með heilbrigða húð morguninn eftir!
Kremið er með góðum ilmi og kemur í stórri glerkrukku og endist því lengi. Svo er gaman að segja frá því að L’Occitane er franskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á náttúrulegum snyrtivörum.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.