Nýja næturserumið frá Biotherm, Serum in oil night er stútfullt af vítamínum fyrir húðina
Kremið er ríkt af Omega 3 fitusýrum sem hjálpa húðinni við að verjast eiturefnum og endurnýja hana á fljótlegan og einfaldan hátt. Það væri eiginlega fljótlegra að telja upp það sem þetta krem gerir ekki fyrir húðina en það sem það gerir. Svo ótrúlegt er þetta Serum. En Omega 3 fitusýrurnar í kreminu hjálpa húðinni við að minnka bólgur, rauða bletti, bólur, kláða og þurrk, svo sé minnst á hvernig þetta vinnur á línum og mýkir húðina upp.
Best er að bera serum-ið á húðina á kvöldin, setja það á hreint andlit og háls með hringlaga hreyfingum. Hægt er að nota það eitt og sér eða með öðru góðu næturkremi.
Það væri eiginlega fljótlegra að telja upp það sem þetta krem gerir ekki fyrir húðina en það sem það gerir.
Sjálf nota ég það eitt og sér því það er með svo mikillri fyllingu. Húðin verður algjörlega silkimjúk strax við fyrstu notkun. Það er þvílíkur munur á húðinni á aðeins nokkrum dögum!
Serum in Oil, Blue Therapy frá Biotherm kemur í flösku með pumpu svo auðvelt er að nota það enda fátt jafn þægilegt að krem í pumpuformi, einfalt og gott. Þú þarft aðeins einn dropa á andlitið og annan á hálsinn. Kremið endist mjög vel og það er ferskur hreinn ilmur af því.
Á einum mánuði er augljós munur á húðinni, fínar hrukkur minnka, húðin ljómar og er mjúk og rakamikil. Biotherm Serum night er Serum sem ég get mælt óhikað með. Algjör lúxus!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.