Ég er alveg hrikalega hrifin af matta útlitinu á nöglum núna, hef séð svart útlit með mattri áferð en ákvað að prófa annan lit.
Liturinn sem ég notaði er frá O.P.I og heitir ROAD HOUSE BLUES, hann er nánast Navy blár og er mjög flottur einn og sér en ennþá flottari með matta lakkinu. Mitt kemur frá Alessandro og heitir Matt top coat.
Ég mæli með því að þú finnir sölustaði sem selja þessi lökk og prófir. Prófaðu einnig fleiri liti og leiktu þér aðeins, ég elska að vera með naglalakk og er óhrædd við að prófa nýja liti það er alveg ótrúlegt hvað naglalakk getur verið hinn fullkomni fylgihlutur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig