Ég verð víst að viðurkenna að ég er forfallin ilmvatnsjúklingur! Hreinlega elska ilmvötn og þarf helst að eiga nokkur fyrir mismunandi tilefni. Ilmvatnið Manifesto frá YSL er mitt nýjasta og það er hreint út sagt unaðslegt!
Ilmvatnið kom á markaðinn í ágúst í fyrra og hefur síðan selst alveg gríðarlega vel og náð miklum vinsældum.
Ilmvatnið er gert fyrir konuna sem er frjáls í anda, hugrökk og hvatvís og er ilmvatnsglasið stútfullt af krafti og kvenleika!
Leikkonan Jessica Chastain er andlit YSL fyrir Manifesto herferðina og finnst henni ilmvatnið lýsa þeim áhrifum sem eru henni helst í huga eins og metnaði, ást og kvenleika.
Ilmurinn er blanda af vanillu, sandalwood, sólberjum og blómunum jasmine og liljum. Frekar mikil og krydduð en samt með stórum dassi af kvenleika og dulúð sem við leitum oft að í hinu fullkomna ilmvatnsglasi.
Manifesto frá YSL er ilmur sem ég get mælt 100% með og þá sérstaklega fyrir góð tilefni á kvöldin.
Það bregst ekki að í hvert skipti sem ég nota þennan dásemdar ilm er ég spurð að því hvaða ilmvatn það er sem ég er að nota og fæ um leið hrós fyrir… ekki leiðinlegt það!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.