L’Oreal setti á markað nýjan primer í vor sem ber nafnið Magic Lumi Primer og ég er alveg fallin fyrir honum.
Magic Lumi Primer veitir ótrúlega fallegan ljóma á húðina sem virðist líflegri, fær á sig geislandi áferð og húðliturinn verður einnig jafnari.
Primerinn er hægt að nota á marga vegu. Þú getur bæði notað hann einan og sér fyrir náttúrulegt útlit, blandað honum saman við farða eða notað hann á afmörkuð svæði sem “highlighter”.
Áferðin á honum er ótrúlega mjúk og þægileg og hann hentar öllum húðgerðum og litatónum.
Prófaðu sjálf og sjáðu muninn…
Hér er frábært kennslumyndband þar sem Collier Strong, make up artist hjá L’Oreal, sýnir okkur hvernig maður notar vöruna og fá sem mest út úr henni en rétt notkun á highligter getur gert ótrúlega mikið fyrir útlitið.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_pqI08Ov90g[/youtube]
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com