L’Oreal er þekkt fyrir góðar hár- og snyrtivörur og er farðinn frá þeim, Lumi Magique engin undantekning.
Farðinn gefur bæði góða- og náttúrulega þekju og einstakan ljóma. Hann er hannaður til þess að endurkasta ljósi þannig að húðin bókstaflega geislar af fegurð. Það er bæði hægt að bera farðann á með bursta og svampi, allt eftir því hversu mikla þekju og áferð þú vilt fá og hvað þér finnst þægilegast.
Fyrir extra flotta útkomu er hægt að nota Magic Lumi Primer frá L’Oreal undir en hann gefur enn meiri ljóma og húðliturinn verður jafnari.
Fyrir þær sem vilja náttúrulega fallega áferð er Lumi Magque algjörlega málið og ekki skemmir að vörurnar frá L’Oreal eru á einstaklega viðráðanlegu verði!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com