Nafnið á þessu ilmvatni Loverdose er vísun í ástina og Tattoo er tákn um kraftinn. Sem sagt Krafturinn í ástinni.
Diesel hannar ekki bara falleg föt því þeir eru með ótal ilmvöt og rakspíra og er Loverdose Tattoo þeirra nýjasta afurð. Ég hef lengi vel verið föst í einum ilmi sem heitir Angel en tók þessum fagnandi. Hann er ögn svipaður mínum uppáhalds en það er meiri blómalykt af Loverdose.
Örlítið þungt en samt svo ferskt á sama tíma. Ég persónulega get ekki notað of þung ilmvötn og því kom þessi ilmur svo skemmtilega á óvart.
Ilmvatnið er blanda af ávöxtum eins og t.d mandarínum og sólberjum. Einnig má finna hint af jasmine, rósum, vanillu og tonka baunum.
Flaskan sjálf er augnayndi. Hún er í laginu eins og hjartalaga demantur, glasið er svart og það er eins og það standi hnífur á kafi í miðju hjartanu.
Loverdose Tattoo kemur í þrem stærðum, 30, 50 og 75 ml flöskum.
Þetta ilmvatn er öflugt vopn því seiðandi ilminn á enginn karlmaður að standast.
Ef þig langar að draga karlmann á tálar úðaðu sparlega á þína uppáhalds staði og skelltu þér út á lífið, þeir eiga ekki afturkvæmt…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=xLbbor18XZI[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.