Loverdose ilmurinn er nýjasta snilldin frá Diesel fyrir stelpur á öllum aldri!
Flaskan er stútfull af ástarilm eins og nafnið gefur til kynna. Ilmurinn er ferskur, létt kryddaður með vanillu, jasmine, mandarine og lakkrís. Ilmurinn er sjúklega góður og hreinlega dregur að sér fólk. Hann er seiðandi og kynþokkafullur en í senn mjög fágaður.
Eftir að ég byrjaði að nota hann hef ég fengið ótalmargar spurningar um hvaða ilmvatn ég sé að nota og það tel ég mikinn kost, bæði frá kvenmönnum og karlmönnum. Svo já..strákar eru algjörlega að fíla þennan ilm, sem er ekki slæmt 🙂
Flaskan er líka sjúklega flott en hún er eins og útskorinn demantur í laginu eins og hjarta. Algjört bjútí!
Loverdose frá Diesel er klárlega málið fyrir jólin!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.