Nýlega kom í verslanir æðisleg lína frá Smashbox. Nýja línan heitir Love Me og er hönnuð í samstarfi við myndlistamanninn Curtis Kulig…
…Línan inniheldur meðal annars tvær augnskuggapallettur sem hafa mikla metal-áferð. Uppáhalds pallettan mín er sú sem heitir Entice Me og inniheldur fimm liti, þrjá sem henta vel hversdags en tvo sem eru meira partý (bláir)!
Umbúðirnar eru einstaklega flottar þar sem Love Me merki Curtis nýtur sín vel og augnskuggarnir eru mótaðir eftir letrinu. Augnskuggarnir líta ekki bara vel í umbúðinum heldur eru þeir sérlega áferðafallegir og endingagóðir þegar þeir eru komnir á augnlokið.
Fyrir neðan má sjá myndband frá Smashbox þar sem förðunarfræðingurinn Lori Taylor kennir okkur að nota palletuna á skemmtilegan hátt.
Love Me línan kemur í takmörkuðu upplagi þannig að áhugasamir ættu að drífa sig á næsta Smashbox stand og skoða hana.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=I8Y8Yb3vni8[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.