Í BB kreminu frá Elizabeth Arden, Visible Difference, Multi- targeted BB Cream er allt sem þú þarft fyrir húðina í einni túpu
Góður hyljari, raki fyrir húðina, farði sem er léttur og olíulaus, sólarvörn og inniheldur nauðsynleg efni til að gefa húðinni ákveðna birtu og fallegan ljóma.
Nákvæmlega það sem við viljum fyrir sumarið. Létt og falleg förðun.
Það besta við kremið er að þú þarft einungis að nota þetta. Engin þörf er á dagkremi, hyljara, sólarvörn eða púðri, þú einfaldlega notar BB kremið.
Kremið kemur í þægilegum umbúðum, nett túpa sem auðvelt er að meðhöndla og þú þarft bara örlítið til að þekja andlit og háls.
Sólarvörnin er snilld, þar sem nú er sá tími kominn hjá okkur hérna á Íslandi að við verðum að nota sólarvörn til að halda húðinni okkar frískri og heilbrigðri. Vörnin í BB kreminu er SPF 30 sem er fullkomin vörn fyrir andlit og háls.
Mæli eindregið með þessum góða farða, kremi og sólarvörn frá Elizabeth Arden, einfalt og þægilegt í notkun, falleg og létt áferð sem hentar fullkomlega fyrir sumarið. Hægt er að fá kremið í þremur tónum svo allir ættu að finna það sem hentar fyrir sinn húðlit.
Þægilegt – silkimjúkt – góð vörn – sem sagt allt í einni túpu!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.