Augnhreinsirinn BI-Facil frá Lancome hefur verið á markaðnum í fjölda mörg ár
..og það ekki að ástæðulausu. Þessi dásamlegi augnhreinsir hefur allt sem góður augnhreinsir þarf að bera til að vera góður. Hann fjarlægir allar gerðir augnfarða, einnig þær vatnsheldu. Hreinsar húðina á mildan hátt svo húðin umhverfis augun verður mjúk og hrein.
Áferðin á vökvanum er olía og vatn og alveg ófitug. Hrista þarf flöskuna létt fyrir notkun og svo er smá vökvi settur í bómullarskífu.
BI-Facil frá Lancome er sérstaklega góður fyrir fólk með viðkvæm augu og notendur augnlinsa.
Ég hef notað þennan augnhreinsir í mörg ár því hann er einfaldlega mjög góður fyrir augun. Ég nota linsur daglega og þarf að nota góðar vörur svo augun verði ekki viðkvæm. Eins er gott að eiga einn augnhreinsir sem hreinsar bæði venjulegan augnfarða og vatnsheldan augnfarða. Allt í einni vöru.
Mæli eindregið með þessum góða augnhreinsir sem hreinsar vel allar tegundir augnfarða, mýkir húðina og hefur róandi áhrif á viðkvæmt svæðið í kringum augun.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.