Ég er búin að finna haustilminn – Lady Million frá Paco Rabanne!
Lady Million er glamúr haustilmur sem hentar að degi til jafnt sem kvöldi.
Grunnur ilmsins samanstendur af hunangi og pathouli plöntu blandað saman við gardenia og hýasintu eða goðalilju sem mynda millitóninn.
Dalalilja og neroli blóm eru síðan topp tónarnir. Blandan er því fersk og eilítið krydduð, tilvalin fyrir óperuna eða leikhúsið á köldu haustkvöldi.
Ilmurinn kemur í flottu og elegant glasi, mótað eins og demantur. En það er vel hægt að lífga upp á snyrtiborðið með þessu fallega glasi. Þá finnst mér ilmurinn einnig koma í smekklegum umbúðum sem eru í senn ákaflega glamúrus.
Lady Million er einn af þessum ilmum sem endist út daginn. Eitt sprey á úlnliði dugar í dágóðan tíma en þess má geta að ég á eau de toilette af ilmnum.
Lady Million fær fimm stjörnur á macys.com en þar er honum lýst af viðskiptavinum sem bæði “sexy” og “glamorous”. “This does make you feel like a million” skrifar Lydia001 frá New York.
Ég mun hiklaust taka þennan ilm með mér í London haustið í nóvember.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.