Það er einstaklega notalegt að bera á sig La Rose, Baume Corps frá Lancome eftir kvöldbaðið/sturtuna.
Góður undirbúningur fyrir væran nætursvefn svo við vöknum endurnærðar og frískar í morgunsárið.
Mjög sætur, frísklegur og kvenlegur ilmur. Ætla að leyfa mér að vera ljóðræn og segja að mér líði eins og prinsessu þegar ég hef borið Baume Corps á mig.
Baume Corps húðmjólkin byggist á samsetningu þriggja rósa sem stuðla að endurnýjun húðarinnar. Rósa Centifolia, Rósa Gallica og Rósa Canina. Einnig inniheldur húðmjólkin olíur og sjávarsmjör (e. shea butter).
Einstaklega hentug húðmjólk, ef þú hefur:
- Þurra húð
- Hrjúfa húð
- Viðkvæma húð
Ávinningur
- Gefur raka og verndar varnarkefi húðarinnar
- Nærir húðina
- Róar húðina
Niðurstaða: Rakagefandi húðmjólk sem smýgur strax inn í húðina og gefur góðan kvenlegan ilm af mildum rósum.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.