NIVEA Q10 anti wrinkle roll-on fyrir augnsvæðið kemur í handhægum umbúðum og er í stuttu máli sagt algjört undrakrem.
Ég er búin að nota þetta krem núna daglega í tvær vikur og verð að segja að það er alveg dásamlegt að byrja daginn á því að nota það. Það er kælandi, dregur úr bólgum, hrukkum og gerir augnsvæðið frísklegra á augabragði.
Þessi flotta vara vinnur gegn fínu línunum sem myndast í kringum augun, dökku baugunum og bólgum í kringum. Það er nickel frítt og virkar strax og það er borið á.
Kremið er jafnframt laust við alla lykt (sem er kostur að mínu mati) og þægilegt til notkunar. Best er að hrista kremið létt áður en maður setur það í hringlaga hreyfingum í kringum augun. Þú finnur strax mun, því roll-onið er kalt og frísklegt.
Nú er ég ekki vöknuð á morgnana fyrr en þetta krem er komið í kringum augun. Dásamlega ferskt augnkrem sem ég mæli heilshugar með. Og ekki láta ódýra verðið blekkja þig því þetta er einstaklega góð og áhrifarík vara.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.