Snyrtivöruframleiðandinn Benefit er með ótrúlega flottar og sniðugar lausnir fyrir konur sem eru á ferðinni yfir daginn, og þurfa t.d. að lagfæra smá fyrir fund eða deit og eru í tímaþröng.
Ein lausnin er JUST IN CASE askjan. Askjan inniheldur vinsælar vörur frá Benefit og þær eru:
Some Kind of Gorgeous
Grunnurinn að fallegri húð sem getur látið þig “feika það” og fengið fullkomna húð á augabragði, felur allar misfellur og snilld til þess að lagfæra þegar líða fer á daginn.
Benetint
Þessi litla flaska inniheldur kinnalit sem gefur þér smá roða og frískar andlitið upp á örskotstundu ásamt því að þú getur notað hann sem varalit!
California Kissin’
Gloss með guðdómlegu myntu bragði sem frískar upp á andardráttinn ásamt því að vera með litlum glimmerögnum sem lýsa upp brosið þitt.
Eyecon
Þessi kemur þér langt… er baugahyljari sem felur baugana að nóttu sem og degi til. Algjört möst til þess að skella á sig eftir langan og erfiðan dag.
Þessi frábæra askja, “kit” eða litli kassi smellpassar í veskið hvort sem þú tekur hana með þér í vinnuna eða á djammið. Það besta við hana er að það er lítill spegill í henni og það þýðir að þú þarft ekki að bíða eftir að komast á klósettið því þú getur frískað upp á þig á staðnum!
Askjan og aðrar vörur frá Benefit fást í flugvélum Icelandair og þú getur pantað hana hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig