Sumar ó sumar komdu fljótt! Gerðu mig útitekna og fína!
Þegar hitastigið er ekki mjög hátt og sólin ekki mikið að sýna sig (þó það sé komið sumar) þá er maður ekki mikið að liggja í pottinum eða á pallinum að sóla sig og reyna að fá smá frísklegan lit á húðina í góðu samstarfi við sólarvörn.
Ég sjálf er búin að vera svo hvít síðustu vikur að ég nánast hvarf inn í hvítu veggina á heimilinu! Síðan kynntist ég undravöru frá ST TROPEZ en hún heitir Instant Glow Face Lotion og mæ ó mæ þetta krem gerir kraftaverk fyrir andlitið!
Það má segja að þetta sé svipað og bronzing gelið frá Kanebo sem svo margar þekkja. Virkar að minnsta kosti með sama hætti, þú getur notað þetta undir og yfir farða eða dagkrem og bara hvernig sem er til að fríska upp á annars fölt hörundið.
Þegar ég ber kremið á mig þá ber ég það á mig í þrist eða eins og töluna 3 á andlitinu:
Byrja á enninu, fer niður á kinnarnar og enda á kjálkanum en hér má sjá færslu um það hvernig maður á að bera á sig sólarpúður og ég set þetta krem framan í mig eins og sólarpúður.
Frábær vara frá ST TROPEZ sem gefur húðinni frískegan ljóma, er súper auðvelt í notkun og klessist ekkert í andlitinu – ég mæli hiklaust með þessu kremi fyrir sumarið fyrir þær sem vilja vera ferskar og flottar!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig