Vörurnar frá Skin Doctors hafa slegið rækilega í gegn að undanförnu og skyldi engan undra því hér eru frábærar vörur á ferðinni.
Sjálf hef ég notað þær reglulega og þá sérstaklega hit – vörurnar þeirra Instant Facelift og Instant Eyelift sem gera mann sætan á augabragði. Lestu umfjöllun um það hér.
Það er fátt betra en að geta gripið slíkt töfrakrem úr hillunni þegar mikið liggur við. Um daginn uppgötvaði ég svo mjög góðan eiginleika Instant Facelift kremsins, en það er hvað kremið er rosalega gott undir farða!
Instant Facelift ber maður á hreina húð og lætur bíða í fimm mínútur meðan það þornar og myndar einskonar filmu á húðina sem gerir hana sléttari og fallegri.
Eftir það er gott að bera á farðann en Instant Facelift kremið bindur farðann með þeim hætti að mjög auðvelt verður að vinna með hann og hann endist lengur á húðinni.
Er það ekki einmitt það sem maður óskar eftir áður en farið er á árshátíð eða í flotta veislu?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.