Hvað ef þú gætir borið á þig krem sem gerði þig sætari á aðeins fimm mínútum? Krem sem gerði þig bara strax að sætustu stelpunni á árshátíðinni?
Þetta krem er til. Það heitir Instant Facelift og kemur frá Skin Doctors.
Instant Facelift sléttir úr húðinni, þéttir og lyftir henni upp svo að árangurinn er strax sýnilegur. Best er að nota rakakrem klukkustund eða hálftíma áður en Instant Facelift er borið á þar sem það brotnar upp í raka. Áhrifin virka nefninlega þannig að kremið myndar einskonar filmu á húðina. Þessvegna er ekki gott að tala eða sýna mikil svipbrigði í svona fimm mínútur, eða meðan kremið er að taka á sig virkni.
Eftir að Instant Facelift hefur verið borið á er upplagt að farða sig. Farðinn helst betur á með kreminu, svitaholurnar verða allar minna áberandi og þú lítur mikið betur út!
Sumar konur nota vöruna daglega en aðrar meira spari, enda er upplagt að eiga þetta fyrir helgar eða sérstaka viðburði þegar maður vill skarta sínu fegursta.
Instant Facelift kostar rúmlega 6000 kr og fæst bæði í Lyfju og Lyf og Heilsu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.