Góður ilmur skiptir mjög miklu máli fyrir andann og það er hreinlega ótrúlegt hvað ljúf angan getur lyft sálinni upp.
Minningar eru til dæmis best geymdar í lyktarskyninu og þegar þú finnur ilm sem þú hefur ekki fundið í nokkur ár flýgur hugurinn rakleiðis aftur í tímann og þér finnst sem þú sért aftur á sama stað á sama tíma og minningin varð til.
Eau Océane frá Biotherm er nýr aromatherapy ilmur sem er upplyftandi um leið og hann er rakagefandi fyrir húðina.
Hann inniheldur ferska sjávar og blómatóna, hreint sjávarvatn og neikvæðar jónir sem hafa áhrif á vellíðan en neikvæðar jónir eru rafhlaðnar frumeindir sem hlaðast í vatni og eru þekktar fyrir örvandi og upplyftandi eiginleika.
Það er líka alveg dásamlegt að úða Eau Océane í hrein rúmföt og yfir sig eftir góða sturtu. Það kemur svo ferskur og ljúfur ilmur sem lífgar uppá og gerir hversdaginn aðeins fallegri.
Ilmurinn er samsettur úr sítrus, jasmínu, moskus og fleiri blómum og ávöxtum sem eru ferskir og ljúfir.
Í línunni er líka hægt að fá sturtusápu og body-lotion með 24 stunda raka.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.