Nú nýlega kom út ilmvatnslína frá ELITE models. Línan inniheldur fjögur ilmvötn sem öll heita eftir nokkrum af helstu tískuborgum heims…
…Ég var svo heppin að fá í hendurnar tvo ilmi úr línunni: Paris Baby og London Queen.
Ef við byrjum á Paris ilmvatninu þá er það rómantískt, eins og borgin sjálf. Það ilmar af blómum og er mjög kvenlegt og létt. Jasmína, vanilla og epli er eitthvað af því sem má greina í ilminum sem ég verð að segja að hljómar ansi girnilega í mínum eyrum.
Þá er það London ilmurinn en honum myndi ég lýsa sem sætum! Hann er meira ‘áberandi’ en Paris ef svo má að orði komast. Ilmurinn er flott samblanda af meðal annars rifsberjum, mandarínu, plómu og musk. Þessi er aðeins meira partí.
Ilmvötnin frá ELITE eru til dæmis tilvalin gjöf en þau eru á frábæru verði.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.