Ein flottasta snyrtivaran sem ég fékk í hendurnar á þessu ári sem er að líða var Brightening Finishing Powder frá Bobbi Brown.
Þetta er alhliða ‘highlighter’ púður sem er mjög gott að nota á t.d. kinnbein, augnbrúnabein og bringubein til að lýsa upp og draga fram í skyggingum, eða bara til að kalla fram hið eftirsótta “glow”.
Umbúðirnar eru sérlega elegant og fínar og áferðin alveg draumur.
Eins er lita -og efnasamsetningin í palletunni einstök, – svo einstök að þessi vara fékk fyrstu verðlaun hjá hinu margrómaða tímariti ELLE sem besta “Finishing” púðrið á þessu ári.
Brightening Finishing Powder frá Bobbi Brown inniheldur meðal annars extrakt úr móberjum og hyaluron sýrur til að halda húðinni ferskri og fallegri. Frábær vara…
…og algjört “mösthave” í budduna eða snyrtiborðið hjá alvöru ‘snyrtivörufíklum’.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.