BB Skin Perfecting Kit frá Gosh inniheldur hyljara, mótara og highlighter, allt í einu boxi. Í boxinu er líka spegill en settið er nett og smellpassar því í allar töskur, sama hversu agnarsmáar þær eru.
Ég er voðalega ánægð með mitt litla box og er búin að nota það á hverjum einasta degi þessa ágætu prófatíð sem nú er á enda. Ég er yfirleitt með bauga ofan í brjósthaldara á þessum árstíma og þessi ágæta vara hefur komið í veg fyrir að ég þurfi að bera slíkt ástand á borð fyrir almenning.
Ég er virkilega hrifin af þessari vöru. Aðallega vegna þess að bæði hyljarinn og mótarinn þekja ákaflega vel. Guð einn veit að ég þarf á slíku að halda – lítandi út eins og sængurver á sjúkrahúsi.
Hyljarinn hylur baugana og mótarinn gefur kríthvítu andliti mínu örlítið lífsmark. Highlighterinn setur síðan punktinn yfir i-ið og gerir mig voðalega frísklega og áherslan er lögð á þá andlitsdrætti sem fegra.
Ég mæli með að þið kynnið ykkur BB Skin Perfecting Kit frá Gosh nánar. Það felur prófa- og almenna desemberbugun alveg á núll einni.
Guðrún Veiga er mannfræðingur að mennt. Týpískt naut, kann vel að meta veraldleg gæði og þrjósk með eindæmum, fagurkeri og eyðslukló.
Naglalökk eru hennar helsti veikleiki og líkamsrækt stundar hún ekki en viðheldur brennslunni með óhóflegri kaffidrykkju.