Glycolic Scrub fix frá Nip+fab er þægilegur og góður kornamaski sem hreinsar og mýkir húðina.
Nú hef ég notað kornamaskann í um þrjár vikur og er verulega ánægð með hann.
Ég var frekar þurr í húðinni þegar ég byrjaði að nota hann svo ég ákvað að nota hann bæði kvölds og morgna til að byrja með. Verð ég að segja að hann þrælvirkar!
Húðin varð strax mýkri og öll jafnari á aðeins 2-3 dögum. Nú nota ég hann á nokkra daga fresti til að fá þessa dásamlegu vellíðunar tilfinningu og til að halda húðinni mjúkri, hreinni og fallegri.
Kornamaskinn Glycolic Scrub fix inniheldur bæði glycolic og salicylic acid sem hreinsa svitaholur, leiðréttir litamismun, jafnar raka í húðinni og sléttir yfirborð húðar. Hann virkar vel á bæði þurra og feita húð. Hann kemur í þægilegum 75ml umbúðum þannig að hann endist ótrúlega vel. Léttur ilmur er af maskanum sem minnir eilítið á grape ávöxtinn.
Glycolic Scrub fix frá Nip+fab er tilvalin ef þig langar til að gefa húðinni smá orkuskot, mýkja hana og hreinsa.
Snilldarvara á góðu verði sem fæst bæði í Lyfju og Hagkaupum. Luv it.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.