Fyrir þær sem vilja vera glitrandi-fínar um jólin þá er Bobbi Brown alveg málið…
…High Shimmer Lip Gloss heitir verðlaunaður varagloss (var valinn besti glossinn á Temptalia) frá Bobbi Brown. Þessi gloss er troðfullur af C og E vítamíni….og glimmeri!
Glossinn kemur í nokkrum litum en ég valdi mér tvo dökka liti fyrir veturinn, Midnight Violet og Plum Gold. Þessir glossar gefa mikinn lit af sér og glitra og glansa alveg svakalega eins og nafnið á vörunni gefur til kynna. Gerir varirnar bæði mjúkar og glæsilegar.
Svo fyrir þær sem vilja enn meira glitur og glamúr þá er hægt að toppa lúkkið með Long-Wear Gel Eyeliner í lit Twilight Night Shimmer Ink. Þessi glitrandi svarti eyeliner er úr Desert Twilight línunni vinsælu frá Bobbi Brown og kemur í takmörkuðu upplagi.
Ótrúlega falleg málmáferð á þessum ‘eyeliner’ sem gerir augnförðunina sparilega og flotta.
Flott glitrandi tvenna sem verður sko notuð yfir hátíðarnar!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.