Ég var að prófa gloss frá Lancôme sem heitir L´ABSOLU Créme de Brillance.
Hann þekur varirnar mjöl vel, og með því gerir hann varirnar fylltari. Í honum er að finna Pro-xylane/hýalúronsýru sem hjálpar til við að gera varirnar þrýstnari.
Hægt er að velja um 9 mismunandi liti. Hlýja, kalda, og náttúrulega Einnig er hægt að velja á milli hvort maður vilji hafa glossinn með glans eða kremaðann.
Ég mæli með þessum, sérstaklega fyrir þær sem vilja þekja varirnar vel með fallegum lit.
Eitt af því sem mér finnst mikilvægt við glossa er að það sé ekki vont bragð af þeim, en það er ekkert bragð af l´absolu créme glossinum, sem mér finnst mikill kostur!
Lancôme býður upp á fleiri gerðir af glossum… Fyrir þær sem vilja léttan gloss, og ekki eins þekjandi þá er gloss sem heitir Juicy Tubes léttur, og glansandi. Fyrir þær sem vilja kremaðan gloss sem er frekar léttur þá er Color fever gloss, léttur til meðal, eftir því hversu mikið er sett á. Fyrir þær sem vilja mikla þekju þá er glossin La Laque meðal til full þekja.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=TpTMzYQECk8[/youtube]