Með aldrinum missir húðin eiginleika sinn til að endurnýja sig og viðhalda raka – Við þessu hefur Gatineau komið með lausnina en það er kremið Age Benefit og er það sérstaklega hannað með konur yfir 50 ára í huga.
Kremið gefur húðinni þann raka sem hún þarf til að minnka og koma í veg fyrir hrukkur. Þéttir húðina og leiðréttir hrukkur sem þegar hafa myndast. Kremið verndar húðina gegn utanaðkomandi áhrifum eins og veðri (sólin fer sérstaklega illa með húðina (muna sólarvörn!) — leiðréttir dökka bletti og ljóma húðarinnar á aðeins örfáum dögum.
Í kreminu Age Benefit eru helstu virku efnin Calcium, Luminix, Shea butter, Almond olía og Avocado olía en þessi efni eru þekkt fyrir góðan árangur þegar kemur að húðumhirðu.
Engin litarefni eru að finna í kreminu og það er laust við Paraben og silikon. Mjög gott!
NOTKUN:
Best er að nota kremið bæði kvölds og morgna til að fá sem mest út úr virkni kremsins. Setja það á andlit og háls.
Alls ekki gleyma hálssvæðinu því þar er húðin svo þunn og fljót að mynda óæskilega hrukkur sem við viljum alls ekki fá.
Age Benefit hefur fengið ótal verðlaun fyrir góða virkni og er eitt það besta á markaðnum í dag. Mæli eindregið með þessu góða kremi sem dagkremi og næturkremi!
Ég gaf góðri frænku minni þetta krem og hún dásamar það í bak og fyrir. Snilldargjöf fyrir mömmur og vinkonur yfir 50 eða þig sjálfa ef þú ert komin á þennan góða aldur.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.