Nú er kominn nýr ilmur frá Calvin Klein fyrir bæði kynin! Þessi nýji ilmur er 2012 sumarútgáfa af hinum geysivinsæla CK One ilmi sem flestir ættu að kannast við…
…Þessi ilmur er frábær að mínu mati. Hann minnir mjög á frískandi ávaxta kokteil sem hentar vel fyrir bæði stráka og stelpur. Mynta, agúrka, grænt epli og ‘lime’ einkenna ilminn þannig að útkoman er vægast sagt fersk og sumarleg.
Ég mæli með að tékka á þessum! Þú getur verið voða góð og gefið kærastanum svona, ef þú átt einn slíkann, og stolist í hann sjálf! Ég er nú þegar búin að gefa mínum svona flösku og við erum bæði mjög hrifin.
Svo skemmir ekki fyrir að ilmurinn kemur í skemmtilegum og öðruvísi umbúðum eins og sjá má á myndinni til hægri.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.