Smashbox er nýtt merki hér á landi sem hefur farið sigurför um allan heim fyrir sínar frábæru vörur.
Meðal annars þessar frábæru augnskugga þrennur sem koma í yfir 16 mismunandi útgáfum, svo auðvelt ætti að vera fyrir alla að finna sína uppáhaldsliti. Litirnir heita Smashbox Photo OP
Litirnir eru þéttir, klístrast ekki saman og haldast mjög vel á allan daginn. Eins eru flest allir litirnir þannig að þú getur auðveldlega notað þá bæði sem dagförðun og kvöldförðun. Sem er auðvitað algjör snilld!
Ég prófaði litina sem heita Auto Expose og eru þeir ljósbleikur highlighter, glimmer vínrauður litur ásamt gráum tón til að gera smá smokey lúkk. Mjög fallegir litir og einstaklega auðvelt að nota þá, eins eru leiðbeiningar aftan á pakkningunni sem sýnir vel hvernig á að nota litina saman. Þú einfaldlega tekur límmiðann af og undir honum eru leiðbeiningarnar.
Mæli með þessum æðislegu augnskuggum sérstaklega þar sem það eru þrír litir í hverju boxi. Þrír litir sem passa fullkomlega við hvorn annan og gera öllum kleift að farða sig flott. Gæti ekki verið auðveldara!
_________________________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=DAmvcs3WU0s[/youtube]
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.