Tilhlökkunin að fá að prófa nýja ilminn frá Lady Gaga hefur verið svo mikil að ég var eins og lítið barn á aðfangadagskvöld sem gat ekki beðið með að opna pakkann þegar ég fékk ilminn loks í hendurnar.
Gaga svíkur ekki núna frekar en fyrri daginn. Ilmvatnið kemur í afar fallegri flösku og tappinn er eins og kló sem læsir sig niður í flöskuna þegar henni er lokað. Flaskan sjálf er glær en vökvinn er svartur, ó já kolbikasvartur og yndislegur. Lyktin er ekki of sterk og jafnframt afar fersk en það er sterkur ávaxtakeimur í ilminum og ég skrifaði um það hér að Gaga vissi nákvæmlega hvað hún vildi þegar hún var að búa til ilminn.
Húðkremið (body lotion) í línunni svíkur heldur engan, það er einnig svartur vökvi og manni líður hálfpartinn eins og maður sé að bera á sig svartan kavíar eða leir þegar því er smurt á líkamann. Húðkremið er mjög rakagefandi og gefur frá sér góðan ilm sem er eins og ilmvatnið og lyktin helst vel á líkamanum ásamt því að vera gefa góðan raka í langan tíma.
Þessi ilmur er klárlega fyrir þær sem þora og tilvalinn í jólapakkann en jólapakkningar með ilminum ásamt húðkreminu er væntanlegur í verslanir innan skamms.
Þess má geta að ilmurinn er með þeim söluhæstu í heiminum í dag og það hlýtur að segja svolítið um gæði ilmsins.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=az1-oLmxhHQ[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig