Everlasting nude glossinn er úr nýjustu línu MAC, Office hours sem datt inn nú í haust.
Liturinn er hlýr ferskjulitur með smá nude tón. Algjörlega fullkominn fyrir haustið.
Glossinn er magnaður hvað varðar loforðið um að hann endist í allt að sex tíma á vörunum og það merkilega er að þetta passar.
Já það er alveg ótrúlegt, ég skelli litnum á mig að morgni, fer í hádegismat og hann er enn á um þrjúleytið!
Glossinn er þéttur og glansar vel án þess að vera of þykkur. Liturinn er líka sjúklega fallegur. Þetta er svona litur sem hentar mjög vel yfir daginn – Fallegur, glansar, helst vel á og já bara fullkominn haustlitur. Enda er glossinn úr línunni Office hours sem á að virka vel í vinnunni og yfir daginn.
Og það er ekki að ástæðulausu sem hann heitir “Everlasting gloss” því það er það sem hann er!
MAC snyrtivörurnar eru auðvitað meirháttar góðar eins og flestir vita og þau fylgja árstíðum vel.
Enda ég er mjög ánægð með MAC og þennan flotta gloss þetta haustið.
Gloss sem hittir algjörlega í mark!!
________________________________________________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.