“Allar konur geta verið fallegar” eru einkunarorð Esteé Lauder og samkvæmt þessum orðum hefur hún byggt upp eitt stærsta snyrtivörufyrirtæki í heimi.
Góðan árangur fyrirtækisins má meðal annars rekja til ýtarlegrar rannsóknavinnu á húðinni og öldrunarferli hennar en niðurstöður Esteé Lauder hafa til dæmis leitt til þeirrar niðurstöðu að falleg húð á uppruna sinn í DNA hverrar konu, eða erfðamenginu. Með þetta að leiðarljósi hefur fyrirtækið verið brautryðjandi í framleiðslu á áhrifamiklum serum-efnum og settu hið fyrsta sinnar tegundar á markað fyrir 30 árum.
Sem brautryðjandi á sviði genetískra húðrannsókna kom Estée Lauder með á markað Advanced Night Repair Synchronized Recovery Complex árið 2009 en það hefur yfir 20 einkaleyfi um allan heim. Með þessari vöru hefur Estée Lauder fyrirtækið sýnt og sannað að það er leiðandi á sviði snyrtivara sem gera við og byggja upp húðina.
Í dag, innblásið af 30 ára nýsköpun og tímamóta erfðarannsóknum, afhjúpar Estée Lauder tímamóta niðurstöður á fordæmislausum rannsóknum fyrirtækisins á Advanced Night Repair en úrtakið var yfir 500 konur af öllum kynþáttum og á öllum aldri um allan heim. Rannsóknin sem fól í sér tólf mánaða klíníska rannsóknarvinnu, sýndi fram á einstakar niðurstöður sem sannaði að konurnar upplifðu áhrifamikla minnkun á öldrun húðarinnar á þessu ári sem þær notuðu Advanced Night Repair.
- Húðtónn – 75% breyting til batnaðar
- Húðáferð – 76% breyting til batnaðar
- Línur/hrukkur – 68% breyting til batnaðar
- Húðstyrkur – 62% breyting til batnaðar
Þessi áframhaldandi yngingar árangur, húðin mýktist, yngdist, áferð hennar var bjartari og heilbrigðari, sannar það enn frekar af hverju konur um annan heim velja og treysta Advanced Night Repair. Til að minnast enn betur þessarar 30 ára nýsköpunnar býður Estée Lauder upp á afmælisútgáfu af Advanced Night Repair flöskunni. Hana prýðir nú fallegur gullskjöldur sem letrað er á “Estée Lauder 30 Years of Innovation”
Þá er gaman að geta þess að rannsóknin náði einnig yfir virkni Advanced Night Repair á ólíka húðgerð af öllum kynþáttum og breiðan aldurshóp en rannsóknin spannaði, hvítar, rómanskar, svartar og asískar konur á aldrinum 30-65 ára. Þessar ótrúlegu niðurstöður sýndu og sönnuðu að Advanced Night Repair kemur á móts við allar þarfir húðarinnar á áhrifaríkan hátt óháð kynþætti eða aldri.
Advanced Night Repair serumið á að nota bæði kvölds og morgna, samviskusamlega, beint á hreina húð. Smelltu HÉR til að skoða myndband um þessa merkilegu vöru.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.