Nýlega kynnti tímaritið Cosmopolitian lista yfir bestu snyrtivörurnar í dag og Nivea stress protect 48 tíma svitaeyðirinn var mjög ofarlega á þessum lista eða í sæti 35 af 148 snyrtivörum.
Nivea hafa verið mjög dugleg gegnum árin að framleiða góðar vörur á góðu verði og er stress protect svitalyktaeyðirinn ekki af lakara tagi.
Hans einkenni eru helst að hann á að virka í allt að 48 tíma. Eins er efnið Zinc í honum sem á að vinna með hormónunum þannig að þú svitnir minna þegar þú ert í stressaðri aðstöðu eða undir miklu álagi.
Frísklegur, endingargóður svitalyktaeyðir sem vert er að prufa!
Kíkið líka á þetta myndband sem sýnir fólk í stressandi aðstæðum – frábær auglýsing frá Nivea og vara sem virkar.
______________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.