Clinique sendi frá sér nokkrar frábærar nýjungar nú í vor en meðal þeirra eru þéttari CHUBBY STICK sem endist lengur og frábært augnkrem sem sýnir árangur strax.
Repairwear Laser Focus Wrinkle Correcting Eye Cream
Vinnur á móti öldrun og hjálpar sýnilega við að laga og vinna gegn hrukkum. Um leið og þú berð það á þig sérðu muninn! Hver vill það ekki? 🙂
Augnkremið gerir jafnframt við UV skemmdir og verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum.
Kremið er líka hægt að nota á önnur svæði þar sem eru sýnilegar línur og hrukkur eins og á milli augna og kringum varir. Semsagt tvö krem í einum pakka og áhrifin láta ekki bíða eftir sér.
Notaðu kremið bæði kvölds og morgna á hreina húð með því að dúmpa mjúklega með einum fingri. Það er best að nálgast alltaf augnsvæðið varlega því þar er húðin bæði mjúk og þunn og þarf því sérstök krem og natni.
Nýja augkremið er bæði ofnæmisprófað og 100% Ilmefnalaust.
Chubby Stick Intense
Chubby Stick Moisturizing Lip Colour Balm sem kom á markaðinn í fyrra er mest seldi varalitur Clinique frá upphafi enda ótrúlega skemmtilegur, handhægur og vel hannaður.
Nú er búið að þétta litinn og kallast nýja útgáfan einfaldlega Chubby Stick Intense. Þetta þýðir að liturinn er sterkari og meira, já – intens.
Chubby Stick er þó enn hið fullkomna hjónaband milli varasalva og varalitar, nærandi, mýkjandi og auðveldur í ásetningu meðan liturinn endist einstaklega vel.
Fyrir alla aðdáendur Clinique er svo um að gera að kíkja í Smáralind um helgina því þar skilst okkur að sé dágóður afsláttur í tilefni konukvöldsins sem fór þar fram í gær og heppnaðist mjög vel!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.